Friday, September 21, 2012

Haustið er komið

Þá er þessu yndislega sumri lokið og haustið er tekið við. Laufin eru orðin gul og rauð og loftið verður alltaf kaldara. Ég elska haustið og finnst fátt jafn gaman eins og að kveikja á kertum og njóta þess þegar það fer að rökkva, drekka te og lesa góða bók.

En það er ýmislegt sem þarf að huga að þegar veðrið kólnar og eitt af því er umhirða húðarinnar. Íslenskt loftslag er rakalítið, eins og flestir vita, og það eru slæm tíðindi fyrir  húðina sem elskar raka. Og það er ekki bara rakaleysið sem herjar á húðina, heldur fer hinn nístingskaldi vetur einnig illa með hana ef henni er ekki sinnt. Rakaleysi og kuldi = líflaus og leiðinleg húð. Fyrir utan að húðvandamál eins og exem verða oft mun verri við þessar aðstæður. Nauðsyn raka er gríðarleg. Hrukkur myndast fyrr á þurri húð heldur en feitari (þau sem glímdu við feita og bólótta húð á unglingsaldrinum geta þá allavega huggað sig við að það kemur sér vel að hafa feita húð seinna meir, feit húð hrukkast öllu jöfnu seinna), húð sem er þurr gefur minna eftir og það er næstum eins og hún "brotni" þegar hún verður of þurr. Feitari húð hefur meiri teygjanleika og myndar hrukkur því seinna. En báðar húðtýpurnar þurfa aukna umhirðu yfir vetrarmánuðina. Hér á eftir eru nokkur ráð til að halda húðinni góðri.

- Auka rakann heima fyrir. Það er lítið mál að annaðhvort kaupa rakatæki eða bara hreinlega skella gömlu ísboxi með vatni í (eða öðru hentugu íláti) á ofninn inni í svefnherberginu. Raki myndast þegar vatnið gufar upp og það skilar sér til húðarinnar.

- Fyrir þær sem glíma við þurra húð á öllum líkamanum er gott að skipta út venjulega líkamskreminu fyrir annað sem er feitara. Og muna að nota það reglulega, eitt og eitt skipti breytir litlu.

- Og það skiptir einnig máli hvenær kremin eru borin á - það læsir inni mun meiri raka að bera á sig krem þegar húðin hefur ekki verið fullþurrkuð eftir sturtur eða böð.

- Reyna að minnka ferðirnar í mjög heitar sturtur eða böð, betra er fyrir húðina að vera í volgu vatni þar sem heitt vatn dregur úr rakanum í húðinni. Ég veit að fyrir margar er það erfitt, sérstaklega fyrir þær sem fara reglulega í sund eða heita potta, en þá er um að gera að njóta bara heita vatnsins og bera duglega af feita líkamskreminu á sig eftir á!

- Drekka nóg vatn (þessi gamla góða tugga). Nægilegt vatnsmagn í líkamanum hjálpar augljóslega til við að halda rakajafnvægi húðarinnar eðlilegu.

- Ekki þvo húðina með of sterkum efnum, né of oft. Húðvörur sem innihalda til dæmis alcohol eru þurrkandi fyrir húðina. Það hentar kannski feitri húð í baráttu við bólur, en ansi mörg hreiniskrem innihalda það þó að tilgangurinn sé ekki að dauðhreinsa sýkt svæði. Það er heldur ekki gott að þvo of oft, það er alveg nóg að nota milda hreinsiklúta að kvöldi til að fjarlægja farða og til að fríska sig á morgnana.

- Nota gott rakakrem! Augljóslega! Fyrir feita húð er nauðsynlegt að finna krem sem inniheldur mikinn raka en er ekki feitt til að koma í veg fyrir bólur eða of glansandi húð. Fyrir þurru húðina er gott að fá smá fitu, henni veitir ekki af. Ég er persónulega mjög hrifin af EGF dropunum, þeir eru ekkert nema raki og bjarga alveg minni feitu en afskaplega yfirborðsþurru húð á veturnar. Einnig er ég mjög hrifin af dagkreminu frá Apótekinu og dagkremunum frá Dr. Hauschka.

- Sólarvörn þegar vetrarsólin skín sem mest.



3 comments :

  1. Ohhh ég er einmitt búin að fylla íbúðina mína af kertum, það er svo kósý :)
    Húðin mín verður extra leiðinleg á veturna, sniðugt ráð með klakaboxið á ofninn, hef aldrei heyrt það áður... ætla klárlega að prófa það!
    En hvernig notar maður þessa EGF dropa og hvar kaupir maður þá? Eru þeir mjög dýrir??

    Annars góð færsla, vona að þær verði fleiri! :)

    ReplyDelete
  2. Droparnir eru til dæmis seldir í Hagkaup, og lítið glas kostar í kringum 3700 kr. Það á að endast í um einn mánuð fyrir þær sem nota það á hverju kvöldi en þar sem feit húð þarf ekki að nota það öll kvöld þá skelli ég því á mig bara svona 3-4 sinnum í viku og það hjálpar með rakann :) Já, ég ætla sko að standa við að gera fleiri :)

    ReplyDelete
  3. Vííí hlakka til að lesa :)

    Er að spá í að tékka á þessum dropum!

    ReplyDelete