Monday, October 22, 2012

Dekurkvöld

Stundum finnst mér alveg nauðsynlegt að taka frá kvöldstund og fara í heitt bað, setja á mig andlitsmaska og lakka á mér neglurnar (ég er nakklalakksjúklingur og skipti um liti á nokkurra daga fresti). En ég kaupi sjaldnast fína maska eða krem því það sem ég bý til heima virkar afskaplega vel. Ég er menntaður snyrtifræðingur og þekki því það sem hægt er að forðast til að spara pening og útbúa heima í staðinn. Einn sá skrúbbur sem ég á alltaf til og nota oftast er sítrónu og sykurskrúbbur sem ég nota á fæturnar á mér. Hann endist lengi og því skelli ég saman þessu tvennu í fallega krukku sem ég síðan geymi inni á baði. Þá er hann alltaf tilbúinn þegar ég ætla að skrúbba fæturna á mér vel. Ég þoli ekki þurra og sprungna hæla sem rúmfötin festast við og því er ég duglega að nota þennan og svo gott krem eftir á. Ég blanda bara sykri í krukkuna, um það bil 2/3 af stærð krukkunar og set síðan sítrónusafa út í, þannig að sykurinn verður gegnblautur. Svo keypti ég mér þessa líka finu merkimiða í Söstrene Grene og merkti svo þetta yrðu nú sætt á baðhillunni. Það er einnig hægt að gera sama skrúbbinn úr til dæmis salti og ólívuolíu eða sykri/púðursykri og ólívuolíu (eða bara hverri þeirri olíu sem hver vill). Olían er hentug fyrir þá sem vilja mikinn raka en sítrónan fyrir þá sem vilja hreinsandi meðferð.





Eftir sturtuna maka ég svo feitu kremi á fæturnar, það er hægt að fá fínustu krem í snyrtivöruhillunum í matvörubúðum og það er alls ekki alltaf nauðsynlegt að kaupa rándýrt fótakrem, þær sem glíma við fótavandamál ættu frekar að athuga það. Uppáhaldið mitt þessa dagana er Cocoa Butter kremið frá Vaseline, það er vel feitt og hentar fótunum mínum vel, plús að ég er mjög hrifin af lyktinni. Ég smyr þessu á fæturnar, skelli mér í hlýja sokka og beint upp í rúm og sef í sokkunum, þá smýgur kremið enn betur inn og daginn eftir er ég með afskaplega mjúka og sæta fætur!



Það er líka nauðsynlegt að gera maska fyrir andlitið og það eru aðallega tveir maskar sem ég er hrifin af og nota alltaf með hvor öðrum. Ég er með feita húð sem er yfirborðsþurr og þeir henta henni vel. Fyrst þá nota ég hreinsandi maska sem sótthreinsar og losar um dauðar húðfrumur, hann er einskonar sótthreinsandi skrúbbmaski sem hentar viðkvæmu svæði eins og andlitinu. Í hann fer matarsódi og vatn, ekkert annað. Ég blanda saman tveimur teskeiðum af matarsóda og hálfri til einni teskeið af vatni, hræri svo vel saman svo að það myndast krem sem freyðir örlítið.



Því næst ber ég þetta á allt andlitið og læt liggja í 10-15 mínútur. Maskinn harðnar og er kannski örlítið óþægilegur og stingandi fyrst, og fyrir þær sem eru með viðkvæma húð er best að stytta tímann örlítið. Hann er þrátt fyrir það mildur og hentar flestum, þó þær séu ekki með feita húð. Hann virkar jafn vel til að hreinsa húðflögur og gefa ljóma. Svo hreinsa ég hann af með volgu vatni. Til að fullkomna meðferðina set ég svo dúndurrakamaska, eða haframaskann minn ógurlega sem gerir mig svo slétta og mjúka. Í hann fara 2-3 matskeiðar af haframjöli og nægilegt magn af vatni til að það verði grautur. Svo er bara að bera gumsið á sig, getur verið vandasamt þar sem það tollir misvel, en þá er bara best að liggja út af, klessa þykku lagi á andlitið og slappa af með hann í svona 15 mínútur, skola svo vel af og bera á sig rakakrem. Þessi einfaldi maski er það besta sem húðin mín fær (og ég get eytt peningunum mínum frekar i eitthvað annað...föt til dæmis!). Önnur afbrigði af hreinsandi maskanum eru til dæmis að setja saman kanil og hunang, kanillinn virkar eins og skrúbbur og hunangið er hreinsandi, styrkjandi og bara alhliða gott, og hentar þessi kannski betur þeim sem eru með mjög viðkvæma húð eða mjög þurra. Og fyrir þær sem eru með mjög þurra húð er gott að bæta smá hunangi við hafrana til að fá auka raka. Svo bara gúrkur á augun, fætur upp í loft og slappa af.

Eins og ég sagði áður þá er ég naglalakksfíkill af verstu sort og er alltaf að snyrta á mér neglurnar og lakka með nýjum litum. Það skiptir máli að eiga almennilega tól til slíks og góð þjöl og naglabandaklippur skipta þar miklu máli. Naglabandaklippurnar fást á flestum stöðum sem selja snyrtivörur og eru nauðsynlegar til að snyrta svæðið í kringun neglurnar, mér þykir ekkert eins ljótt og að vera með fínt lakk en rifna húð allt í kringum neglurnar. Svo er að sjálfsögðu nauðsynlegt að vanda sig því ekkert naglalakk er betra en illa á sett naglalakk. Svo vanda sig - æfingin skapar meistarann!





 Ég skellti þarna á dökkbláum lit og setti glimmerrönd á til að breyta aðeins til. Dökka lakkið er frá OPI og heitir Light My Sapphire, og hitt er frá merkinu Ashanti og er númer 113G (þessi lökk fást í Zebra Cosmetique á Laugaveginum, virkilega skemmtileg búð með allskonar vörum, þá sérstaklega er ég hrifin af nakklalakksúrvalinu þeirra, það er mikið og þau kosta frá 199 og upp úr). Ég snobba lítið í naglalökkum og kaupi mér sjaldan lökk sem kosta mikið, verstu kaup sem ég hef gert var Chanel lakk sem ég keypti fyrir löngu á í kringum 4000 kr. Lakkið flagnaði af eftir tvo daga og liturinn varð ekkert líkur því sem hann var í flöskunni. Ég varð hundfúl og ákvað að ef ég splæsi í dýr lökk, þá verða þau allavega að vera gordjöss svo ef ég fæ ekki að prófa þessi dýru, þá sleppi ég þeim.

Eftir svona dekurkvöld þá er ég komin með fínar neglur og mjúka húð svo þessi kvöld eru nauðsyn fyrir sálartetrið annaðslagið. Svo hendi ég mér upp í sófa/rúm með góða bók og myntuteið frá Jurtaapótekinu og ef ég er heppin fæ ég kannski fótanudd - þá er kvöldið fullkomnað.







Wednesday, September 26, 2012

Litagleði

Eitt af því sem mér þykir skemmtilegast við haustið eru þessar yndislegu litabreytingar sem verða þegar allt verður rautt og appelsínugult. Það er virkilega gaman að fara í göngutúr með myndavélina og ná fallegum myndum af náttúrunni áður en öll lauf verða fallinn og veturinn verður alkominn. 


Ég ákvað í dag að skella mér í gönguferð (hafði reyndar takmarkaðan tíma þar sem lærdómur kallar á mig), keyrði upp í Elliðarárdal og hafði með mér klippur. Þar sem ég er sveitastelpa í gegn þá sakna ég þess alltaf að vera ekki í friðinum sem fylgir sveitinni. Það er nauðsynlegt að rölta í góðu rigningarveðri og finna lyktina af blautri mold og grasi - ég vil meina að svoleiðis ferðir geri bæði mér og heimaverkefnunum gott því ég kem alltaf endurnærð til baka. En eins og algjör kjáni þá gleymdi ég myndavélinni! Nokkuð sem ég geri aldrei því hún er alltaf í töskunni með mér. En ég kom ekki tómhennt til baka því að ég klippti niður nokkrar fallegar greinar og reyniber sem ég notaði svo í haustskreytingar heima. Önnur þeirra varð afskaplega jólaleg, ég er mikið jólabarn svo það gerist stundum að hlutirnir verða óvart jólalegir. En það er nú í lagi, það má þá bara nota hana lengur! 






Klippurnar góðu og fílaspreyið (Elefanten Haut frá Oasis - fæst í flestum blómabúðum og litli brúsinn kostar í kringum 2000 kr.) eru nauðsynleg áhöld til að snyrta greinarnar og koma í veg fyrir að þær þorni. Gott er skáklippa endann á greinunum sem á að stinga í vatn og síðan stilkhreinsa þann hluta sem verður alveg ofan í vatninu því ef lauf og lítil ber eru skilin eftir þá rotna þau í vatninu. Greinarnar voru frekar þungar og það hefði verið sniðugt að setja litla steina í botninn til að geta stjórnað því betur hvernig þær lögðust, en ég átti enga steina og lét þetta bara duga. Eftir það spreyjaði ég þær með fílaspreyinu og lét þorna í smástund áður en ég raðaði þeim í vasann. Svo skellti ég þeim bara á skenkinn minn og voila, strax kominn smá haustfílingur! Ég ætla reyndar að rölta aftur bráðlega og klippa pínu meira af appelsínugulum greinum, það vantar meiri fyllingu með þessum rauðu og það eru nokkrir girnilegir runnar hér rétt hjá.




Jólalega skreytingin var ennþá einfaldari - ég keypti mér einfaldan hvítan disk á 300 kr. og svo hvítt kubbakerti á 500 kr. í Tiger. Svo brenndi ég smá vax á diskinn, festi kertið í það, snyrti reyniberin og spreyjaði þau og raðaði þeim síðan allt í kringum kertið.





Ég bætti reyndar við nokkrum kanelstöngum, sem hjálpaði ekki neitt við að gera þetta minna jólalegra! En hún er voða fín á borðinu hjá mér þrátt fyrir það. Það er minnsta málið að skipta út litum á bæði kertum og disk og bæta við örlitlu brúnu og appelsínugulu (könglar, appelsínugul lauf) til að "hausta þetta upp". 

Það sem er síðan næst á dagskrá er að kaupa haustkrans í Býflugunni og Blóminu heima á Akureyri þegar ég fer þangað næst. Þau gera alveg virkilega fallega kransa sem hægt er að hengja á hurðir og það er alltaf frekar erfitt að velja úr úrvalinu hjá þeim. Einhver svipaður þessum verður vafalaust fyrir valinu á hurðina hjá mér. 


Friday, September 21, 2012

Haustið er komið

Þá er þessu yndislega sumri lokið og haustið er tekið við. Laufin eru orðin gul og rauð og loftið verður alltaf kaldara. Ég elska haustið og finnst fátt jafn gaman eins og að kveikja á kertum og njóta þess þegar það fer að rökkva, drekka te og lesa góða bók.

En það er ýmislegt sem þarf að huga að þegar veðrið kólnar og eitt af því er umhirða húðarinnar. Íslenskt loftslag er rakalítið, eins og flestir vita, og það eru slæm tíðindi fyrir  húðina sem elskar raka. Og það er ekki bara rakaleysið sem herjar á húðina, heldur fer hinn nístingskaldi vetur einnig illa með hana ef henni er ekki sinnt. Rakaleysi og kuldi = líflaus og leiðinleg húð. Fyrir utan að húðvandamál eins og exem verða oft mun verri við þessar aðstæður. Nauðsyn raka er gríðarleg. Hrukkur myndast fyrr á þurri húð heldur en feitari (þau sem glímdu við feita og bólótta húð á unglingsaldrinum geta þá allavega huggað sig við að það kemur sér vel að hafa feita húð seinna meir, feit húð hrukkast öllu jöfnu seinna), húð sem er þurr gefur minna eftir og það er næstum eins og hún "brotni" þegar hún verður of þurr. Feitari húð hefur meiri teygjanleika og myndar hrukkur því seinna. En báðar húðtýpurnar þurfa aukna umhirðu yfir vetrarmánuðina. Hér á eftir eru nokkur ráð til að halda húðinni góðri.

- Auka rakann heima fyrir. Það er lítið mál að annaðhvort kaupa rakatæki eða bara hreinlega skella gömlu ísboxi með vatni í (eða öðru hentugu íláti) á ofninn inni í svefnherberginu. Raki myndast þegar vatnið gufar upp og það skilar sér til húðarinnar.

- Fyrir þær sem glíma við þurra húð á öllum líkamanum er gott að skipta út venjulega líkamskreminu fyrir annað sem er feitara. Og muna að nota það reglulega, eitt og eitt skipti breytir litlu.

- Og það skiptir einnig máli hvenær kremin eru borin á - það læsir inni mun meiri raka að bera á sig krem þegar húðin hefur ekki verið fullþurrkuð eftir sturtur eða böð.

- Reyna að minnka ferðirnar í mjög heitar sturtur eða böð, betra er fyrir húðina að vera í volgu vatni þar sem heitt vatn dregur úr rakanum í húðinni. Ég veit að fyrir margar er það erfitt, sérstaklega fyrir þær sem fara reglulega í sund eða heita potta, en þá er um að gera að njóta bara heita vatnsins og bera duglega af feita líkamskreminu á sig eftir á!

- Drekka nóg vatn (þessi gamla góða tugga). Nægilegt vatnsmagn í líkamanum hjálpar augljóslega til við að halda rakajafnvægi húðarinnar eðlilegu.

- Ekki þvo húðina með of sterkum efnum, né of oft. Húðvörur sem innihalda til dæmis alcohol eru þurrkandi fyrir húðina. Það hentar kannski feitri húð í baráttu við bólur, en ansi mörg hreiniskrem innihalda það þó að tilgangurinn sé ekki að dauðhreinsa sýkt svæði. Það er heldur ekki gott að þvo of oft, það er alveg nóg að nota milda hreinsiklúta að kvöldi til að fjarlægja farða og til að fríska sig á morgnana.

- Nota gott rakakrem! Augljóslega! Fyrir feita húð er nauðsynlegt að finna krem sem inniheldur mikinn raka en er ekki feitt til að koma í veg fyrir bólur eða of glansandi húð. Fyrir þurru húðina er gott að fá smá fitu, henni veitir ekki af. Ég er persónulega mjög hrifin af EGF dropunum, þeir eru ekkert nema raki og bjarga alveg minni feitu en afskaplega yfirborðsþurru húð á veturnar. Einnig er ég mjög hrifin af dagkreminu frá Apótekinu og dagkremunum frá Dr. Hauschka.

- Sólarvörn þegar vetrarsólin skín sem mest.