Tuesday, October 29, 2013

Bleikar varir - Pink lips

Barry M lipstick in Shocking PinkMake up Store eyeliner in blackMake up Store Wonder Blush in Cleopatra

Stundum rekst á myndir á netinu eða í tímaritum sem heilla mig upp úr skónum og ég nýti mér það sem innblástur fyrir sjálfa mig. Ég kem til með að rokka bleikar varir, bleikar kinnar og svartan, þykkan eyeliner á næstunni, það er á hreinu!

****

Sometimes I come across pictures on the internet or in magazines that simply take my breath away and I use them as an inspiration for my makeup routine. I will be rocking pink lips, pink cheeks and thick, black eyeliner for the next days or weeks, that's for sure!


Saturday, October 26, 2013

Dorothy Perkins

Ég vinn í hlutastarfi í Dorothy Perkins og stundum er voðalega erfitt að hemja sig þegar margt fallegt kemur í búðina. Í næstum hvert skipti sem ég kem í vinnunna, en það er á tveggja vikna fresti og hittir alltaf á þegar ný sending er komin, þá sé ég eitthvað sem mig langar í. Það hefur verið alveg sérstaklega erfitt síðan haustvörurnar fóru að koma, margt hefur bæst á listann og það er orðið ansi erfitt að velja og hafna. Síðasta fimmtudagskvöld var einmitt vinnukvöld og ég var með myndavélina meðferðis og fannst tilvalið að smella af nokkrum myndum af því sem mig langar helst í. Þessi óskalisti er því svona spes Dorothy-listi.

****

I work part-time at Dorothy Perkins and sometimes it's hard to limit myself to only one or two things each month, especially when when the store is full of clothes I love. Every time I show up for work I find something new to add to my Dorothy-wishlist and this fall has been particularly hard since their fall line is beautiful. Last Thursday was work night, I had my camera with me and took a few pictures of some of the things I love.


Ég alveg elska þessar jeggingsbuxur því áferðin er svona mitt á milli leðurs og glans/I love these Jeggings because of the leathery/shiny texture


Þessar eru ekki minna töff en ég og hlébarðamunstur eigum afskaplega vel saman. Mæli samt með því að taka stærðina fyrir ofan þá sem þið venjulega notið því þessar gefa lítið sem ekkert eftir/These are so cool and I love leopard print. I recommend getting them in one size bigger than usual as these jeans have very little give.



Ég þarf svo að eignast stutt leðurpils og ég er þegar búin að eignast þessar köflóttu buxur, þær voru bara það flottar að ég þurfti ekkert að hugsa mig um með þær/I have to have a mini faux-leather skirt and I already own the chequered pants.




Gallabuxurnar í Dorothy eru æði og ég er voðalega skotin í þessum með götunum því rokkarinn í mér er aldrei langt undan. Svo á ég aldrei nóg af kósýpeysum og loðjakkinn er bara algjört æði, hann er svo mjúkur að ég þarf reglulega að klappa honum þegar ég labba framhjá/The Dorothy Perkins jeans are great and I love these black ones with the holes in them, the rocker within me is never far away. And I can never have too many cosy sweaters or faux fur coats and the black one is sooo soft!

Tuesday, October 22, 2013

Svartar strendur - Black Beaches








Ég rændi þessum fallega kjól frá vinkonu minni um helgina því ég var að fara á árshátíð og langaði að vera í einhverju dramatísku - þessi kjóll uppfyllir það skilyrði algjörlega. Ég var svo hrifin af honum að ég fékk leyfi til að halda honum aðeins lengur og setja hann á bloggið. Allt við þennan kjól heillar mig, blúndan, síddin (ég elska allt sítt) og hvernig pilsið sveiflaðist til og frá þegar ég tætti upp dansgólfið. Ég kem til með að skila honum heim til sín grátandi, svo mikið er víst. 

Myndatakan gekk þokkalega fyrir sig nema hvað ég er ekki vel æfð í að hafa "sæta fésið" uppi við þegar sólin er svona sterk og því voru margar myndanna ónothæfar vegna þess að ég gretti mig svo mikið. Svo einbeitið ykkur að kjólnum gott fólk! Fyrir utan að kuldinn var rosalegur, ég er ísbjörn að norðan en vá, það er fátt eins kalt og kaldur dagur í Reykjavík. Puttarnir á mér voru bláir og tennurnar í mér glömruðu og núna, mörgum klukkustundum seinna, þá er ég enn skjálfandi inni í mér. Næst sýni ég ykkur úlpu og ullasokka, það er ekkert vit í hanga niður á strönd í blúndukjól og október næstum búinn!


****

I hijacked this beautiful dress from a friend of mine because I was going to this fancy dinner thing last Saturday night and I wanted to wear something dramatic - and this dress is dramatic. I fell in love with it and and got my friend's permission to put it on my blog because a dress like this deserves to be photographed. I love everything about this dress, the lace, the length (I looove long skirts and dresses) and the way it swirls when I'm tearing it up on the dance floor. I will be turning it back crying.  

The photo shoot went ok but since the sun was so bright, a lot of the pictures turned out to be useless because my "pretty face" was more of a "squinty face" and that is not the look to be desired. So focus on the dress people! Besides it was freezing. I'm a polar bear from the north, but man, nothing is as cold as a cold day in Reykjavík. My finger turned blue and my mouth was frozen shut and now, many hours later, I'm still shivering inside. Next time I will show you a wool jumper and furry boots because it doesn't make any sense to be hanging around the Icelandic beach wearing a lace dress in late October!